Þóra kisulóra
11.01.2007 00:16:38 / þóra

Ekki svo slæmmt

S´má svona hvað ég er búinn að gera af mér síðustu daga:  Á föstudagin þá hitti ég Erlu vínkonu mín á kaffihúsi og fékk mér smá kaffi og svo bauð hún mér í mat og já ég samþykkti það,, svo leið á kvöldið og djammasinn í þóru kom upp og mín skellti sér á djammið í sko vetrarúlpu og með húfu.. ég bara nennti ekki að keyra heim til að skipta um föt. Jæja þetta var sko fillerí,, mjög gaman svo vaknaði ég hress daginn eftir sko þvílíkt hress,,,  Svo leið á dagin og ég ákvað að kíkja á Maríu og palla upp í bústað og það var varla verra djamm,, ég skemmti mér ekkert smá. Mjög gaman..

Sunnudagur,, allan daginn var ég með í maganum því að daginn eftir var minn fyrsti skóladagur ( mér leið eins og ég væri að fara minn fyrsta dag i grunnskóla, spennt en hrædd.. ) allt gekk vel og já ég ætla bara að gera mitt besta....

Já já skrifa meira seinna ......


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 13:43:38 / þóra

Jæja komin í brjáluðu borgina

Ég er lennt í þessari klikk borg... Ég er ekki að djóka, ég held að ég fari niðrí bæ ( ef ég fer) þá með brynju og sverð í rassvasanum það er alltaf verið að stinga fólk og já einn var höfuðkúbu brotinn síðustu helgi niðrí bæ... Ekki alveg að heilla mig... Ég kom í gær seinnt og ég er ekki að djóka ég sko hljóp úr bílnum og inn,,,:| ´Svo var ég andvaka við tilhugsunina um að það gæti einhver ráðist á litla sæta bílinn minn:!:... Hann er í lagi enn sem komið er .. Það var sammt nærðum því búið að keyra á mig í morgun.. .Ég bara öskraði,, ÉG helda að klikkaða kellingin8| hafi heyrt í mér alla vegana þá stoppaði hún millimeter frá östru minni....

En jám mín fékk bara þetta flotta herbergi í grensásveginum og bara ánægð..:haha:

Ég ákvað í dag að kíkja til palla bróður og skoða íbúðina og fá að vafra smá á netinu og áleiðinni hingað þá tók ég upp götukortið og skildi nottla ekki baun í því og ákvað bara að keyra beinn áfram,, það gekk ekki eins vel og maður héllt.. Ég vissi ekkert hvar ég var og fór að blóta eins og band brjálður api og hugsaði með mér að það ætti að sjást í þennan Hallgrímsturn og já þá birtist hann mér og ég bara ók í áttina að honum og fann þá staðinn .... Bara snilli .... Ég veit.....

En jám best að fara að gera eitthvað að viti.. lesa bók eða eitthvað.. Nei djók ég að lesa bók segðu annan......:$


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 00:22:58 / þóra

Ég er kominn með leið á þessum stað

Ég er virkilega farinn að hlakka til þess að fara suður. Ekki misskilja mig, ég elska patró út af lífinu en félagslega séð er ég að rotna:| Ekki halda sammt að ég sitji bara inni allan daginn og bori í nefið, Ó nei . Það er margt hægt að gera sér til dundurs hér og já það er oft djammað. Já, já

Ég fékk inngöngu í alla þá skóla sem að ég sótti um í og hef ákveðið að fara í Fjölbrautaskólan við ármúlan:D Lovly... Ég er kominn með vinnu og bara eitt smáatriði eftir og það er svefnstaður.. Ég get víst ekki fengið bekk niðrá Hlemmi ( það er ekki netsamband þar:S)

Vá pælingin að það er bara korter í jól eða þannig. Ég var að pæla í því að gefa bara öllum kerti og spil.. .Nei ég verð víst að finna eitthvað betra en það8|

Ef að þú lesandi góður veist um eitthvað gott herbergi fyrir sunnan á sanngjörnu verði. Þá skalltu endilega láta mig vita.. ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 18:58:20 / þóra

Ætli einhver frsmheldsskóli vilji mig!!!!!!

Ég er búinn að sækja um í ármúla og svo er það bara spursmál hvort að apinn komist inn. Ég er ekki kominn með herbergi fyrir sunnan en er að vona að það reddist;) Ég er sammt kominn með vinnu vei ég er svo dugleg.

Ég er núna í fjarnámi og það er sko ekki að ganga, ég hef engann sjálfsaga. Hann kemur vonandi með tímanum og ég er að hann komi í janúar. Það er aldrei að vita:$

Núna er ég ein heima eða ég er með dýrin, Vá hvað hundar þurfa mikið. Mér líður eins og ég sé að passa litla stelpu nema ég myndi ekki þurfa að fara út að labba með litla stelpu í rigningunni.

Það voru þrumur og eldingar síðustu nótt, burrrrrr,,,,,,, doppa var sko hrædd hún sko stakk hausnum undir sæng. Ég skil hana vel.

Ég læt vita ef að eitthvað gerist og já ég er bara lélegur bloggari:S


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 13:13:18 / þóra

lalalalaal

Jæja stelpan búinn að kaupa sér tölvu og það sko fartölvu. J+a M+in töffari..

Fór Suður Síðasta fimmtudag og skrapp til mins fallega tannsa. Hann var eitthvað er gera við tennurnar og þurfti að gera við og í kjölfarið að deifa mig svo ég myndi hætta að rífa kjaft og já ég gat ekki talað, hann bara skellti friends í tækið og setti á mig hedfóna svo ég gæti ekki heyrt allt baktalið um mig. Ég var svoldið hrædd þegar hann sagðist ætla að taka endajaxl í leiðinni en þá var hann víst að jóka.

Þetta var kl 9 um morgunin og svo fór ég í búðir eins og esss mæltur hálviti og fólk héllt að ég væri fötluð og reyndar fékk að leggja í fatlaðar stæði í staðinn. Tansi sæti sagði að ég myndi fá afslátt í búðum fyrir að vera mállaus. En nei fólkið var bara hrætt við esss mæltu ófreskjuna.

Það er sko meira...Ég fór nærðum því að gráta því að kallinn í ingvari Helgasyni sagði að likillinn minn væri bilaður of Ég þyrfti að kaupa nýjan´.Ég var að brjótast í grát þegar kallinn sagðist bara ætla að gefa mér nýjan. Haha Allt er hægt að gera smá tár og púfst lykill

En jæja verð að fara að synna kelllingunni. she ie horny

bæbææ


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 22:35:58 / þóra

riping cd

Jæja hér sit ég og velti vöngu mínum yfir lífinu og tilverunni. jamm, jamm ég skil ekki neitt.

Ég er sammt snilli ég var í fyrsta skipti að brenna disk og það tókst í fyrsta 

verð að fara bæ æb


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 00:16:53 / þóra

austur klaustur eða fiskur oj

jæja Ég var búinn að plana alveg næstu helgi, Ég pantaði í baldur, gistingu og alles, svo í gær þá ákvað ég að prennta út dagskránna fyrir Danska daga, Það héllt ég að ég væri að fara á en vitið menn þeir eru 18-20. ágúst. Ég held að við vinkonurnar eigum að fá nóbels verðlaunin fyrir heimsku 8|því að ef að ég hefði ekki ákveðið að prennta þetta út þá hefðum við farið. En jæja leið okkar liggur nú austur. Við förum norður á fimmtudaginn og kannski/ vonandi austur á föstudaginn. Sko það getur líka verið (sammt vona ekki) að við förum á fiskidaga á Dalvík. Mér finnst fiskur svo vondur.:|oj......

Ég keyfti mér bíl :haha:þann 13. júlí svona í afmælisgjöf handa sjálfri mér ég átti afmæli þann 12. júlí. Ég gaf mér opel astra 2002 árgerð 1600 vél og mér líkar bara mjög vel við hana östru mína.

Allt er bara á góðu nótunum hjá mér núna. Er búinn að vinna eins og brjálæðingur og vona að launaseðillinn verði aðeins betri næstu mánaðarmót. Enda er ég að fara til tannlæknis í sept og þarf að eiga smá aur.

Ég kveð nú að sinni og KOMMENTIÐIÐ

aaarrrrrr......:!:


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 15:58:01 / þóra

margt og mikið'

Bara að láta vita að ég er á lífi og allt súper gott að frétta af mér. I love my djob. Það er að stittast í sjómannadagshelgina. verð að fara segji meira seinna.

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 16:34:02 / þóra

plús og mínus

sorry hvað ég er búinn að skrifa lítið undanfarið en já í stórum dráttum þá er ég á lífi og er kominn frá frakklandi :!:og þar var sko gaman fékk reyndar alveg kynferðislega áreitt fyrir lífstíð:|. það var sko gripið í klofið á manni tekið í mann og haldið og strákar sem að stoppuðu fyrir framan mann og bara horfðu á mann. Það er slegið á rassinn á manni og sagt you are beautiful og bara ellt mann. Ég veit núna hverrt ég fer þegar ég er búinn að fullvissa mig um að enginnn strákur hér á landi vill mann. En ef að maður er búttaður og í leit að fötum þá er parís ekki rétti staðurinn því að þar er aðallega bara eitt númer og það er fyrir algtjörar mjónur. Ég þurfti alveg þvílíkt að leita af fötum sem að var hægt að koma öllum mínum fellingum í. En já það var sko æðislegt úti og ég væri ekkert á móti því að fara aftur. og já ég fór líka  til belgíu í einn dag og audda keyfti mér súkkulaði ;)og tók með mér heim og namm, namm það var svo gott.

Ég kom heim og fór að vinna upp á sjúkrahúsi og mér finnst ég eiga heima þarna, þetta er bara held ég það sem qað ég á að gera í lífinu að hjúkra og hjálpa. Það er allt gott hjá mér er búi8nn að komast að meiru sem að karles hefur gert meðan við vorum saman og það er ekki fallegt og eitt til dæmis og það er að þetta helvíti:evil: hélt framm hjá mér í nærrum ár af þessu eina og hálfa ári sem að við vorum saman:frown:. Mér finnst bara sem að allir eigi rétt á því að vita hversu mikið úrþvætti hann er því ekki vil ég að einhver önnur lendi í sömu grifju og ég.

En ég er já í gúddí og hlakka gegt til sjómannadagsins :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 00:55:40 / þóra

parís here I come

Ví Ví ég er að fara til parísar á föstudaginn og bara er að deyja úr spenning. Ég er ekki búinn að pakka og ég er að fara suður á morgun kl 9 með flugi því að ekki er neitt fara að finna:|

Hef ekki tíma til að skrifa mikið núna læt vita af mér


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 15:55:17 / þóra

Hvað er verið að slora

Já herrar mínir og frúr. Ég er kominn í slorið og er búinn að vera í því. Eftir langa og erfiða leit þá kommst ég að því að í þessum bæ er enginn vinna að fá nema í odda fiskvinnslu.:S

Ég er útlendingur í mínu eigin landi8|.því að ég vinn eiginlega bara með útlendingum og og það eru pólverjar sem að tala mjög litla íslensku og ég bara stend hreinlega frá 7-15 og segi ekki orð nema kannski: ó, úps og ha. og eina sem að er sagt við mig er: nei, svona og eitthvað á pólsku.

Annað á daskrá þá fór ég á Þorpið um helgina og var alveg á rassgatinu:haha:. Rétt svo náði að drulla mér áður en ég dó og varð svo fárveik daginn eftir. Ég líka ætlaði sko að hösla mín nebbla svoldið á þörfinni. Ég eitthvað brosti og var eitthvað byrjuð að reina við einn strák og svo hringdi helvítis síminn minn og þá var það ólöf kjútí og hún segir mér að það er ekki nó að þessi kall sé með konu, þau eiga líka barn saman.:whut: svo jæja það út um þúfur en ég sammt skemmti mér alveg gegt og bara ánægð að hafa dregið sjálfan mig út:lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 20:38:55 / þóra

,zkjhg,lfh

Það er sirka mánuður þar til ég fer til frakklands og ég á engann pening og er í litlu og mjög ílla launuðu starfi. Ég er í stórum vandræðum. En ég mun bjarga þessu það er pottþétt. Vonandi:lol:

Ég er alveg búinn að missa móðin. Ég bara verð einhvernveginn að redda mér út úr þessu.

Sólin skein og vindurinn lék um hárið, Ég labbaði inn í náttúruna og gat varla andað, reindar var það vegna þess að ég fékk asmakast sem að lagaðist. Ég náði andanum, saug í nefið og hélt áfram inn dalinn með doppu og úfna hárið.

Ég er farinn að horfa á sjónvarpið

bæbæ


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 12:58:55 / þóra

hello kitty

Ég hef komist að einu og það er að fólk kíkir á síðuna mína en ég bara veit ekki hverjir það eru. Svo að það væri fínt að þið mynduð kvitta.

Ég sit hér á náttfötunum, mínum kitty náttfötum. Þau eru bleik og flott. Ég er úldin og´æðisleg vaknaði við ljúfan draum og það var að mamma kom með bollu og kaffi, namm namm. Ég er ekki enn búinn að finna mér fasta vinnu. En tímin leiðir allt í ljós. Ég er öll að koma til og mér líður andlega og líkamlega miklu betur, ef að einhver hefur verið að pæla í því. ;)

Ég er orðin nýji kokkurinn á heimilinu mínu. :SÞað er nebla þannig að mamma er búinn að vera veik og hún er ekki búinn að geta eldað og það má bara vera græmetis réttir í matinn og það hefur bara enginn viljað læra að elda grænmeti. Ég tók mig til svo að við myndum ekki svelta og er búinn að vera sjá um matinn í veikindafríi mömmu. Þar komst mamma mín að því að ég væri snillingu, eða reyndar þá hefur mamma alltaf vitað að því. Ég bara alein gerði alveg dírindis mat enda hef ég alltaf verið frekar myndarlegur kokkur8). Ég hef alla vegana ekki enn fengið kvartanir. :haha:

Ég kveð að sinni því að persónulega þá hef ég ekki orku í að lesa langt blogg og því sleppi því oft. Allt sem að þið viljið að aðrir menn gjöri yður skulið þér og þeim gjöra:P

Ég skal hafa það gott   bæbæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 17:11:36 / þóra

..

Ég er svo ánægð að vera kominn heim, Ég er búinn að koma mér vel fyrir heima. Ég er kominn með tímabundna vinnu við að þrífa hjá ellismellum. Ég fæ oft tár í augun hugsandi um síðasta mánuð.:cry: Ég held að ég viti núna hvernig botnin lítur út og ég held að ég er ekki á leiðinni neitt á næstunni til ak.

Hey ég er ekki sátt ég var að heyra í fréttunum að það á kannski að ógilda íslenska eurivision undankeppnina og vilja ekki senda nóttina út. Ef að við eigum að komast út þá focking verðum við að senda nóttina út

Jæja við skulum með góðri von vona að janúar hafi ekki skilið eftir stóra ör í lífi mínu.:$

Ég skal reyna að vera glaðlegri:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 11:58:37 / þóra

halló I know

Ég veit að það eru allir með svona í gangi. En ég er bara doldið forvitinn.:$
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kissa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2